Endurgreitt Til baka á forsíðu
Endurgreitt · Render ehf.

Þjónustusamningur og skilmálar

Skilmálar þessir gilda um þjónustu Render ehf., kt. 440400-4260, við endurheimt virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði. Þeir eru samþykktir áður en vinna hefst.

1. Umfang þjónustu

Render ehf. tekur að sér að yfirfara framkvæmdareikninga verkkaupa, greina vinnuliði frá efniskostnaði, afla sundurliðaðra gagna frá verktökum ef þörf krefur og útbúa og skila inn umsókn um endurgreiðslu virðisaukaskatts til Skattsins á grundvelli 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

2. Frummat og lágmarksviðmið

Frumskoðun á rétti verkkaupa er verkkaupa að kostnaðarlausu. Render ehf. áskilur sér rétt til að hafna verkefnum ef áætluð endurgreiðsla nemur minna en 150.000 kr.

3. Umboð og upplýsingaskylda

Verkkaupi veitir Render ehf. takmarkað rafrænt umboð á þjónustuvef Skattsins (skattur.is) vegna umsóknarinnar og skuldbindur sig til að afhenda tiltæk gögn og greiðslukvittanir. Render ehf. fer með öll gögn sem trúnaðarmál í samræmi við lög um persónuvernd.

4. Þóknun og greiðsluskilmálar

Engin þóknun fellur til ef umsókn skilar ekki endurgreiðslu. Fáist endurgreiðsla samþykkt greiðir verkkaupi Render ehf. árangurstengda þóknun, sem ræðst af heildarfjárhæð endurgreiðslu frá Skattinum:

Heildarendurgreiðsla Þóknun
Allt að 300.000 kr.25% (lágmark 25.000 kr.)
300.001 – 1.000.000 kr.18%
1.000.001 – 3.000.000 kr.14%
Yfir 3.000.000 kr.10%

Þóknun er tilgreind án virðisaukaskatts, sem bætist við samkvæmt lögum. Reikningur Render ehf. er gefinn út þegar Skatturinn hefur samþykkt og greitt út endurgreiðsluna, með 10 daga eindaga.

5. Afturköllun umboðs

Ef verkkaupi afturkallar umboð eða lýkur umsókn sjálfur eftir að Render ehf. hefur unnið greiningu og aflað gagna, á Render ehf. rétt á umsaminni þóknun samkvæmt 4. gr., miðað við samþykkta endurgreiðslu.

6. Samþykki

Þjónustusamningur er samþykktur með rafrænni undirritun eða skriflegri staðfestingu í tölvupósti áður en vinna hefst.

Endurgreitt er rekið af verkfræðistofunni Render ehf., kt. 440400-4260, Borgartúni 29, 105 Reykjavík · Sími: 698 7912 · Netfang: info@endurgreitt.is