Endurgreitt Til baka á forsíðu
Endurgreitt · Render ehf.

Persónuverndarstefna

Render ehf., kt. 440400-4260, Borgartúni 29, 105 Reykjavík, er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga á vefnum endurgreitt.is.

Þegar notandi sendir inn fyrirspurn í gegnum vefsíðuna söfnum við nafni, símanúmeri, netfangi, heimilisfangi eignar og áætluðum kostnaði framkvæmda, í þeim eina tilgangi að meta rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts og hafa samband vegna þjónustunnar.

Upplýsingarnar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál í samræmi við lög nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þær eru aldrei seldar eða afhentar óviðkomandi þriðja aðila og þeim er eytt ef ekki kemur til viðskiptasambands.

Fyrirspurnir varðandi persónuvernd má senda á info@endurgreitt.is.